top of page
Snorri Ásmundsson
Snorri Ásmundsson (f. 1966) hefur verið starfandi sem myndlistamaður í tuttugu ár en á þeim tíma hefur Snorri staðið fyrir ýmsum samfélagsgjörningum sem hafa gjarnan vakið mikla athygli. Þar má nefna borgarstjóra framboð, forseta framboð. Einnig hefur Snorri boðið landslýð aflátsbréf til sölu gegn fyrirgefningu syndanna. Snorri hefur látið til sín taka sem gagnrýnandi á samfélagslegt ástand og notar til þess ýmsa miðla, t.d. málverk og teikningu, skúlptúr og innsetningar auk þess að hafa tekið kvikmyndalistina í sína þjónustu til að koma hugmyndum sínum á framfæri.
bottom of page